Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Skipta alþjóðalög einhverju máli lengur eða ræður hnefaréttur hins sterka? Þessi spurning hefur orðið sífellt áleitnari eftir að Bandaríkjastjórn lét nema forseta Venesúela á brott fyrir skemmstu og hóf sprengjuárásir á Íran um helgina, að því er virðist í trássi við alþjóðalög. Hvað þýðir það fyrir smáríki eins og Ísland, sem hefur á lýðveldistímanum átt allt sitt undir því að alþjóðalög og alþjóðlegir samningar séu virtir? Við ræðum við Kára Hólmar Ragnarsson, lektor í þjóðarrétti við lagadeild Háskóla Íslands.
Í Noregi er litið sem launaþjófnað sem glæp en ekki brot á reglum eins og hér landi og getur varðað allt að sex ára fangelsi. Við ræðum við lögfræðing norska alþýðusambandsins og formann Eflingar.
Íslenski dansflokkurinn sýnir danssýninguna Garðinn í Borgarleikhúsinu nú um mundir. Þar er líka sýnd dans-kvikmyndin Paradísarverur, sem tekin var upp við hitabeltisaðstæður um hávetur. Við kynnum okkur sýninguna,.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.