21:55
Ófærð III (3 af 8)

Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Eldfimt ástand ríkir á milli danska vélhjólagengisins og sértrúarsöfnuðarins að Ásum. Andri heldur til Reykjavíkur að leita manns sem gæti búið yfri mikilvægum upplýsingum í tengslum við morðið.

Aðgengilegt til: 10. desember 2026
Lengd: 39 mín.
Ekki við hæfi yngri en 12 ára
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
  • Endursýnt
,