Kaupmannahöfn - höfuðborg Íslands

Þáttur 2 af 6

Í öðrum þætti halda þeir Egill og Guðjón áfram göngu sinni um hverfin umhverfis Amalienborgarhöll og fara á slóðir íslenskra listamanna í Konunglega leikhúsinu og Listaakademíunni. Þeir líta inn á einn af uppáhaldsveitingastöðum Jóns Sigurðssonar og kynnast nokkrum af Íslandskaupmönnunum sem verða á vegi þeirra í þáttunum.

Frumsýnt

10. jan. 2018

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kaupmannahöfn - höfuðborg Íslands

Kaupmannahöfn - höfuðborg Íslands

Guðjón Friðriksson og Egill Helgason leiða áhorfendur um söguslóðir í Kaupmannahöfn. Borgin við Sundið var um aldaraðir hin eiginlega höfuðborg Íslands. Þangað leituðu Íslendingar til náms, starfa og fræðiiðkana, en Kaupmannahöfn var líka miðstöð verslunar Íslendinga. Við kynnumst Íslandskaupmönnum, stúdentum, sérvitringum, skáldum og stjórnmálamönnum, en líka fólki sem fór til Hafnar afla sér iðnmenntunar eða einfaldlega til freista gæfunnar. Víða í borginni leynast sögur af Íslendingum. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Þættir

,