Á gamans aldri II

Leyft öllum aldurshópum

Dagmar Agnarsdóttir

Dagmar Agnarsdóttir er engin venjuleg amma á áttræðisaldri. Hún er margfaldur heimsmethafi í kraftlyftingum í flokki 70 ára og eldri. Ung að árum dreymdi hana um að verða listmálari. Foreldrar hennar höfðu aðrar væntingar og vonir þannig að hún gerðist hárgreiðslumeistari. Fjölmörgum árum seinna, þegar hún fluttist til Asíu, sneri hún sér að listinni. Síðan þá hefur listin verið stór hluti af lífi Dagmarar sem hefur haldið fjölmargar sýningar og myndskreytt barnabækur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Á gamans aldri II

Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,