Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Hart hefur verið tekist á um drög atvinnuvegaráðherra um lagareldi, sem kynnt voru í samráðsgátt fyrir skemmstu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja frumvarpið vel ígrundað og hafa möguleika á að búa til grundvöll að sjálfbærri verðmætasköpun - en gera þó ýmsar athugasemdir. Landssamband veiðifélaga telja það mikla afturför frá frumvarpi síðustu ríkisstjórnar og ávísun á útdauða villta laxastofnsins. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, voru gestir Kastljóss.
Benedikta Eik Eiríksdóttir, sem leitaði blóðföðurs síns í 20 ár, segir mun algengara en margir halda að fólk sé rangfeðrað. Eftir að fjölmargir í svipaðri stöðu og hún höfðu samband við hana stofnaði Benedikta samtök fyrir rangfeðrað fólk.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum.
Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samninganefnd Íslands, og Sigurður Kári Kristjánsson, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, rifja upp gang viðræðnanna og spá í spilin um framhaldið.
Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Þórunn Guðjónsdóttir.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir.
Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir. Dómari: Sveinn Guðmarsson.
Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Bein útsending frá úrslitum í spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir. Dómari: Sveinn Guðmarsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Finnskir heimildarþættir. Jessica Stolzmann kaupir sér kolefnisjafnaðan hamborgara í Finnlandi en kemst að því að ekki er allt sem sýnist. Fjallað er um hvernig við kaupum okkur oft hreina samvisku á kostnað umhverfisins.
Andri Freyr Viðarsson flandrar um Íslendingabyggðir í Vesturheimi, skoðar áhugaverða staði og heilsar upp á fólk. Með honum í för er tónlistarmaðurinn KK. Framleiðandi: Stórveldið.
Í Winnipeg er margt að gera og sjá. Andri fær leiðsögn um þessa litríku höfuðborg Manitoba frá Robbie Rousseau sem er lífskúnstner og Vestur-Íslendingur af guðs náð. Robbie fer með Andra í gamla Íslendingahverfið og sýnir honum kirkjuna sem vesturfararnir létu byggja þegar þeir fluttu úr sveitinni í borgina. Fyrir utan ráðhúsið í Winnipeg skoðar Andri styttu af Jóni Sigurðssyn sem er tvífari þeirrar sem er á Austurvelli. Andri hittir fyrir unga Vestur-Íslendinga sem búa í borginni, meðal annars hjólabrettasnillinginn Tommy, stelpurnar í rokkhljómsveitinni Mis en Scene og fjöllistakonuna Freyju Olafsson. Áður en Andri yfirgefur Winnipeg fær hann sér stærsta hamborgara álfunnar og kíkir á tónleika með KK.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Laufey vann aftur Grammy-verðlaun 2. Oddvitar í borginni. Ari Páll tekur á móti ykkur.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu, háa stýrivexti og dýrtíð mælist neysla með mesta móti. Hefur almenningur það gott þrátt fyrir allt eða er misskipting að aukast þar sem þeir efnaminni borga brúsann? Gestur Kastljós er Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent í efnahagsfélagsfræði sem hefur rannsakað ójöfnuð.
Persónuverndarreglur í Evrópu eru strangar en samt sem áður fá notendur snjallsíma og snjallúra oft þá tilfinningu að stóri bróðir sé að fylgjast með. Við köfum ofan í gagnasöfnun í snjalltækjum í þættinum og komumst að því hvernig síminn þekkir okkur jafnvel betur en við sjálf.
Við hittum einnig tónlistarkennara Laufeyjar Línar sem vann sín önnur Grammy-verðlaun um helgina. Platan hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Kristín Sigurðardóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Níu menn hafa krafið forsætisráðherra um rannsókn og bætur vegna mikils ofbeldis sem þeir segjast hafa orðið fyrir sem börn á sveitabæ allt til ársins 2002. Barnaverndarnefndir sendu fjölda barna á bæinn og eftirlit virðist hafa verið í molum.
Önnur þáttaröð bresku dramaþáttanna um lögregluþjóninn Chris sem tekst á við glæpi og ofbeldi á götum Liverpool-borgar á sama tíma og hann berst við djöfla í einkalífi sínu. Chris reynir af fremsta megni að koma sér á beinu brautina, en þegar hann kemst upp á kant við einn stærsta eiturlyfjasala borgarinnar hallar undan fæti hjá honum. Aðalhlutverk: Martin Freeman, Adelayo Adedayo og Romi Hyland-Rylands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngi en 12 ára.
Norsk heimildarþáttaröð um síðasta ár Jens Stoltenberg í starfi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Hann reynir að veita Úkraínu stuðning í stríðinu gegn Rússlandi á sama tíma og óttinn við stríð í Evrópu eykst. Leikstjóri: Tommy Gulliksen.
Ný íslensk þáttaröð í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Ditte Jensen lætur af störfum í dönsku leyniþjónustunni og flytur í fjölbýlishús í Reykjavík. Draumur hennar er að lifa óáreitt meðal fólks sem þekkir hvorki stríð né blóð. Það kemur þó fljótt í ljós að Ditte getur ekki hætt að vera það sem hún er - þrautþjálfaður hermaður. Fyrr en varir er blokkin hennar orðin að vígvelli í baráttunni fyrir bættum heimi. Hún finnur sig knúna til að hjálpa nágrönnum sínum sem glíma við hin ýmsu vandamál og það skiptir hana engu hvort þeir vilji aðstoðina eða ekki. Í huga dönsku konunnar réttlætir tilgangurinn meðalið. Alltaf. Meðal leikenda eru: Trine Dyrholm, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Edda Guðnadóttir, Björn Thors, Halla Vilhjálmsdóttir, Juan Camillo Estrada, Raffaella Brizuela Sigurðardóttir, Natalía Kristín Karlsdóttir, Kolbrún Helga Friðriksdóttir, Hrafn Alexis Elíasson Blöndal og Baldur Björn Arnarsson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Ditte uppgötvar að nágrannar hennar eru ekki verðugir kærleika hennar og umhyggju og jafnvel íslensk náttúra svíkur hana. Allt virðist snúast gegn henni. Í tilraun til að bjarga vini sem villst hefur af leið grípur hún til örþrifaráða.
A new Icelandic TV series directed by Benedikt Erlingsson. When Ditte Jensen retires with distinction from the Danish intelligence service she moves into an apartment building in Reykjavik. Her dream is to be able to tend to her garden and live her life in anonymity. But Ditte cannot stop being who she is – an elite soldier and a warrior. Soon the apartment building becomes a battlefield for a better world. She feels compelled to help her neighbours, who are struggling with a wide range of problems, and it makes no difference to her whether they want the help or not. In the mind of the Danish woman, the end justifies the means. Always.
Cast includes: Trine Dyrholm, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Edda Guðnadóttir, Björn Thors, Halla Vilhjálmsdóttir, Juan Camillo Estrada, Raffaella Brizuela Sigurðardóttir, Natalía Kristín Karlsdóttir, Kolbrún Helga Friðriksdóttir, Hrafn Alexis Elíasson Blöndal, and Baldur Björn Arnarsson.
Not suitable for children under 12 years of age.
Ditte discovers that her neighbours are unworthy of her love and care, and even Icelandic nature seems to betray her. Everything appears to turn against her. In an attempt to save a friend who has gone astray, she resorts to desperate measures.