13:40
Kastljós
Tekist á um lagareldi, Samtök rangfeðraðra

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Hart hefur verið tekist á um drög atvinnuvegaráðherra um lagareldi, sem kynnt voru í samráðsgátt fyrir skemmstu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja frumvarpið vel ígrundað og hafa möguleika á að búa til grundvöll að sjálfbærri verðmætasköpun - en gera þó ýmsar athugasemdir. Landssamband veiðifélaga telja það mikla afturför frá frumvarpi síðustu ríkisstjórnar og ávísun á útdauða villta laxastofnsins. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, voru gestir Kastljóss.

Benedikta Eik Eiríksdóttir, sem leitaði blóðföðurs síns í 20 ár, segir mun algengara en margir halda að fólk sé rangfeðrað. Eftir að fjölmargir í svipaðri stöðu og hún höfðu samband við hana stofnaði Benedikta samtök fyrir rangfeðrað fólk.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 27 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,