19:45
Kastljós
Efnahagsmálin, Laufey Lín og persónuvernd við notkun snjalltækja

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu, háa stýrivexti og dýrtíð mælist neysla með mesta móti. Hefur almenningur það gott þrátt fyrir allt eða er misskipting að aukast þar sem þeir efnaminni borga brúsann? Gestur Kastljós er Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent í efnahagsfélagsfræði sem hefur rannsakað ójöfnuð.

Persónuverndarreglur í Evrópu eru strangar en samt sem áður fá notendur snjallsíma og snjallúra oft þá tilfinningu að stóri bróðir sé að fylgjast með. Við köfum ofan í gagnasöfnun í snjalltækjum í þættinum og komumst að því hvernig síminn þekkir okkur jafnvel betur en við sjálf.

Við hittum einnig tónlistarkennara Laufeyjar Línar sem vann sín önnur Grammy-verðlaun um helgina. Platan hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,