Í Sumarlandanum förum við út og suður, vítt og breitt, langt yfir skammt og allt þar á milli. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Elsa María Drífudóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Halla Ólafsdóttir, Þórdís Claessen, Jóhann Alfreð Kristinsson og Steiney Skúladóttir. Tónlistarkonan Árný Margrét sér um tónlistina. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Elvar Örn Egilsson, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Karl Sigtryggsson. Ritstjóri: Gísli Einarsson.
Við tökum þátt í sjóstangsveiðimóti á Patreksfirði á vegum Sjóstangveiðifélags Reykjavíkur. Þar ber að sjálfsögðu vel í veiði.
Við fræðumst um uppgerð Pálshúss á Ólafsfirði og nýtt hlutverk hússins.
Við förum inn í heillandi heim frímerkjasafnara.
Við tökum þátt í reykköfunaræfingu hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins.
Loks hittum við Reiðhjólabændur í Reykjavík. Það er hópur hjólreiðafólks sem lætur gott af sér leiða með því að gera upp gömul reiðhjól. Hjólin eru gefin börnum sem annars ættu ekki kost á að eignast svona gripi. Í þessu verkefni taka líka þátt hælisleitendur sem vantaði eitthvað við að vera.