24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Lið Árborgar og Reykjanesbæjar eigast við í 16 liða úrslitum.
Heimildarþættir um danskar fjölskyldur þar sem börnin vaða uppi og ráða lögum og lofum á heimilinu. Ráðalausir foreldrarnir fá til liðs við sig sálfræðing sem sérhæfir sig í barnauppeldi í von um að ná aftur stjórn á afkvæmunum.
Hljómskálinn snýr aftur, stappfullur af íslenskri tónlist. Í Hljómskálanum er farið vítt og breitt yfir sviðið í tali og tónum auk þess sem tónlistarfólk úr ólíkum áttum vinnur lög sérstaklega fyrir þættina. Unnið er með ólík þemu í hverjum þætti, á borð við mat, hættulega tónlist, ímynd og peninga. Hljómskálinn er í umsjón Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts er sérstök greiningardeild þeirra Braga Valdimars Skúlasonar og Guðmundar Kristins Jónssonar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Hingað til lands hefur á undanförnum árum og áratugum komið hæfileikafólk frá öllum heimshornum, sem hristir upp í tónlistarlífinu og færir okkar nýja og ferska strauma. Við ræðum við Óskarsverðlaunahafa og Hollywoodstjörnur sem hafa sest að á Íslandi og auðgað tónlistarlífið. Hinn færeyski Jógvan vinnur lag með leyndardómsfullu ofurstjörnunni Our Psych.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Hann var kallaður hinn hvíti Pele þegar hann fór út í atvinnumennsku á sautjánda ári til Belgíu og segist hafa stundað slökun og hugleiðslu á milli leikja. Arnór Guðjohnsen er gestur í Okkar á milli.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Við kynnum okkur þjónustu Janusar starfsendurhæfingar, sem verður að óbreyttu lokað í sumar. Janus hefur boðið upp á endurhæfingu og geðmeðferð fyrir ungmenni á aldrinum 18-30 ára. Undanfarin tvö ár hefur starfsemin verið rekin á grundvelli þjónustusamnings við Virk og Sjúkratryggingar Íslands. Ekki virðist vilji til að endurnýja samninginn þegar hann rennur út í sumar. Starfsfólk, notendur og aðstendur þeirra hafa þungar áhyggjur af stöðunni.
Gestir Kastljóss í framhaldinu eru Alma Möller, heilbrigðisráðherra, og Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Virk, sem segja að notendum Janusar verði tryggð önnur úrræði.
Í lok þáttar ræðum við við listakonu sem ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur gerði risavaxið vegglistaverk í Vatnsmýri á dögunum.
Norsk leikin þáttaröð frá 2024 um ástarsamband kanadíska tónlistarmannsins Leonards Cohen og hinnar norsku Marianne Ihlen á sjöunda áratug síðustu aldar. Aðalhlutverk: Alex Wolff, Thea Sofie Loch Næss og Anna Torv. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð BBC um það hvernig nasistar komust til valda. Þýskaland var lýðræðisríki árið 1930. Fjórum árum seinna var landið orðið að lögregluríki þar sem ótti ríkti og ofsóknir á hendur minnihlutahópum voru daglegt brauð. Árið 1939 hófst seinni heimsstyrjöldin með hörmulegum afleiðingum fyrir heimsbyggðina alla. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.