Við sjávarsíðuna

Hraun á Skaga

Heimsótt eru hjónin Merete Rabølle og Steinn Rögnvaldsson, bændur á Hrauni á Skaga. Steinn segir frá smábátaútgerð sinni sem hann rekur orðið frá Skagaströnd en áður var gert út frá Hrauni. Hann er með fimm tonna trillu sem hann gerir út í félagi við bræður sína og nágranna, bæði á línu og grásleppunet. Grásleppuhrognin vinna þeir sjálfir á Skagaströnd en selja fiskinn á fiskmarkaðnum þar. Steinn ræðir um útgerðina og veiðiskapinn, gæftir í vetur og ástandið í sjónum úti fyrir Norðurlandi sem hann segir mjög gott um þessar mundir. Til dæmis kom krían upp pattaralegum ungum í fyrrasumar og nóg æti virðist vera fyrir hana og aðra sjófugla öfugt við það sem er vestan- og sunnanlands. Síðan segir Merete frá því hvernig leið hennar Hrauni frá Danmörku þaðan sem hún er. Hún segir frá lífinu á Hrauni, búskapnum og hlunnindanýtingu en ræðir líka um framtíð byggðar á Skaga þar sem mjög hefur fækkað undanfarna áratugi, möguleikana sem hún sér, til dæmis selja svalandi og frískandi norðanáttina.

Frumflutt

28. apríl 2012

Aðgengilegt til

20. nóv. 2025
Við sjávarsíðuna

Við sjávarsíðuna

Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.

Umsjón: Pétur Halldórsson.

Þættir

,