Vetrarbraut

Þáttur 12 af 52

Þátturinn var fyrst á dagskrá 21. desember 2013.

Umsjón: Gerður Kristný Guðjónsdóttir

Kæru hlustendur! þessu sinni býður Vetrarbrautin upp á lög um Lísu frá Odessa með eftirminnilegu röddina, Söru, skáldið í hjartanu, Rafael sem líkist engli og Mörtu sem fær upphringingu frá gömlum grátklökkum vini um miðja nótt. Hér verða leikin lög frá ýmsum löndum um nafngreint fólk.

1. Björk - Frosti 1.52

Þetta var lagið Frosti eftir Björk Guðmundsdóttur.

2. P. J. Harvey - Angelene 3.25

Árið 1994 birtist mynd af tónlistarkonunni á forsíðu breska tónlistartímaritsins Q ásamt þeim PJ Harvey og Tori Amos. Allar koma þær við sögu í þessum þætti. Hér er PJ Harvey með lagið Angelene.

3. Tori Amos - Angie 4.20

Eitt frægasta popplag sem samið hefur verið til konu er Angie eftir David Bowie. The Rolling Stones gerði lagið frægt en hér er það Tori Amos sem flytur það.

4. Serge Gainsbourg - Manon 2.16

Serge Gainsbourg veit ekki í hvorn fótinn hann á stíga þegar Manon er annars vegar. Hann bæði hatar hana og elskar.

5. Suzanne Vega - Marlene on the Wall 3.40

Suzanne Vega er afbragðs textasmiður. Í einu af þekktari lögum sínum segir hún sögu um stúlku sem hefur mynd af Marlene Dietrich uppi á vegg. Marlene fylgist með öllu sem fram fer á heimilinu og gæti eflaust gefið stúlkunni góð ráð.

6. Tom Waits - Martha 4.22

Í næsta lagi biður Tom Waits símstöðina um gefa sér samband við gamla kærustu, hana Mörtu. Hann langar til segja henni frá því sem drifið hefur á daga hans síðan þau hittust síðast.

7. Francis Cabrel - Lisa 3.40

Hægt er velja úr fjölda laga með Francis Cabrel þar sem hann syngur um konur. Lagið Lisa er eitt þeirra.

8. Carla Bruni - Raphaël 2.23

Carla Bruni er svo hrifin af nafninu Raphaël hún samdi lag um það. Það er finna á fyrsta disknum hennar Quelqu’un m’a dit sem kom út árið 2003 og varð feikivinsæll.

9. Sara - Fleetwood Mac 6

Eitt þekktasta lag Fleetwood Mac er eflaust Sara. Stevie Nicks samdi lagið sem gefið var út á plötunni Tusk árið 1979.

10. Damien Rice - Rice

Næsti flytjandi heitir Damien Rice. Hann flytur lagið Amie af plötunni O.

10. Kristin Hersh - Peggy Lee 3.12

Kristin Hersh gerði garðinn frægan með hljómsveitinni The Throwing Muses á 9. áratug síðustu aldar en hóf síðan sólóferil. Learn to Sing Like a Star er einn afbragðsdiskanna sem hún hefur sent frá sér. Þar er finna lagið Peggy Lee.

11. Nanna Lüders Jensen - Buster 3.38

Danski rithöfundurinn Bjarne Reuter samdi bókina Veröld Busters árið 1979. Bille August gerði sjónvarpsþætti eftir sögunni og fékk Nönnu Lüders Jensen til semja titillagið. Það heitir auðvitað Buster.

12. The Waterboys - And a Bang on the Ear 7.20

Meistarastykkið Fisherman’s Blues með The Watersboys kom út árið 1988. Þar er finna lagið„And a Bang on the Ear“. Mike Scott syngur um konurnar sem hann hefur elskað um dagana og kyssir þær í huganum. Það verður síðasta lag þáttarins. Þakka ykkur kærlega fyrir hlusta.

Birt

21. des. 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vetrarbraut

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014

Þættir

,