Vetrarbraut

Þáttur 2 af 52

Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. október 2013

Umsjón: Kristín Svava Tómasdóttir

Al Green, Love and happiness:

Hér söng bandaríski tónlistarmaðurinn Al Green um ást og hamingju, en ástin og þó fyrst og fremst grúvið verða á dagskrá hjá okkur í kvöld.

Freddy, Sombras y más sombras:

Næst syngur kúbanska söngkonan Fredesvinda Garcia, eða Freddy eins og hún var jafnan kölluð. Freddy lést árið 1961 og náði ekki þrítugsaldri, en þessi dimmraddaða söngkona markaði þó skýr spor í tónlistar- og bókmenntasögu Kúbu, en hún var fyrirmyndin söngkonunni Estrellu Rodrigues í skáldsögu Guillermo Cabrera Infante, Tres tristes tigres. Þetta er La Freddy með Sombras y más sombras.

Aretha Franklin, I´ve never loved a man:

Þetta var bandaríska söngkonan Aretha Franklin með lagið I´ve never loved a man the way I love you frá 1967.

Steinunn Bjarnadóttir, Þú hvarfst á brott:

Sem söngkona er Steinunn Bjarnadóttir einna þekktust fyrir hafa flutt lagið Strax í dag með Stuðmönnum á plötunni Sumar á Sýrlandi, en hér flytur hún erlent dægurlag sem hefur verið sívinsælt og gefið út í ótal útgáfum síðan það var samið árið 1910. Á ensku heitir það Some of these days en Steinunn syngur lagið við íslenskan texta Lofts Guðmundssonar, Þú hvarfst á brott. Þetta var Steinunn Bjarnadóttir með Þú hvarfst á brott.

Bill Withers, Use me:

Það er krúttbangsinn Bill Withers sem tekur við, en hann er óvenju ísmeygilegur þar sem hann syngur um hina þversagnakenndu vegi ástarinnar í laginu Use me frá 1972.

Ellý Vilhjálms, Hvers konar bjálfi er ég:

Þetta var hin ástsæla söngkona Ellý Vilhjálms með íslenska útgáfu af ensku söngleikjalagi frá 1962, Hvers konar bjálfi er ég.

Dusty Springfield, The windmills of your mind:

Ég heyrði fyrstu tóna næsta lags í bíósal í Portúgal haustið 2005, í auglýsingu fyrir írsku myndina Breakfast on Pluto, og varð strax viðþolslaus koma yfir það höndum. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig því þetta var fyrir tíma Youtube, nettenging ekki jafn almenn ytra og í Reykjavík og netverslun iTunes tók ekki íslensk kreditkort. Þegar ég loksins komst yfir lagið, með dyggri aðstoð austurrísks kreditkorthafa, hlustaði ég á fátt annað í heila viku. Þetta er Dusty Springfield með The windmills of your mind.

Þetta var Dusty Springfield með lagið The windmills of your mind, af plötunni Dusty in Memphis, sem hún hljóðritaði, eins og nafnið gefur til kynna, í Memphis, árið 1969.

Antonio Machín, Camarera de mi amor:

Í kjölfar Dusty Springfield heyrum við í kúbanskspænska söngvaranum Antonio Machín. Machín var fæddur á Kúbu árið 1903 og frá barnæsku dreymdi hann um verða óperusöngvari. Fyrir fátækan svartan strák var hins vegar ekki hlaupið því inngöngu í háborg klassískrar tónlistar, og hann fór því syngja alþýðu- og dægurtónlist í staðinn. Hér er hann með lagið Camarera de mi amor.

Haukur Morthens, Með blik í auga:

Þetta var Haukur Morthens með eitt af sínum bestu lögum, Með blik í auga, hljóðritað í Kaupmannahöfn árið 1962.

Syl Johnson, I hear the love chimes:

En heyrum við bandaríska tónlistarmanninn Syl Johnson flytja lagið um klukkur ástarinnar: I hear the love chimes.

Olavi Virta, Sokeripala:

Þetta var Syl Johnson með I hear the love chimes. Það er finnski söngvarinn Olavi Virta sem tekur við. Hann var þekktur sem konungur finnska tangósins og hljóðritaði mörg frábær lög á söngferli sínum, en varð alkóhólismanum bráð og drakk sig í hel aðeins 57 ára gamall árið 1972. En hér er Olavi Virta enn í fullu fjöri með ungverskættaða lagið Sokeripala, Sykurmoli, frá 1954.

The Olympians, To Sxoleio:

Þetta var Olavi Virta með lagið Sokeripala. Við höldum frá Finnlandi til Grikklands og heyrum hljómsveitina The Olympians flytja lagið Skólinn, en gríska titilinn treysti ég mér ekki til bera fram.

Destiny´s Child, Survivor:

Þetta var hljómsveitin Destiny´s Child með Survivor frá árinu 2001. Hljómsveitin hefur lagt upp laupana en sem betur fer fáum við enn njóta hæfileika einstakra meðlima hennar.

Vinicius de Moraes, Samba em prelúdio:

Um þessar mundir auglýsir íslenskt forlag nýja bók um vín með spakmæli eftir Robert Louis Stevenson, sem sagði vín væri eins og ljóð á flösku. Brasilíski meistarinn Vinicius de Moraes sagði aftur á móti: “Viskíið er besti vinur mannsins. Það er eins og hvolpur á flösku.” Vináttan við viskíhvolpinn hafði sín áhrif á heilsu tónlistarmannsins, en hann lést fyrir sjötugt árið 1980. Besta plata Vinicius de Moraes er sem hann hljóðritaði á tónleikum í Buenos Aires árið 1970 ásamt söngkonunni Mariu Creuza og gítarleikaranum Toquinho. Við sláum botninn í þáttinn í kvöld með einu fallegasta laginu af plötunni, og er þó úr mörgum velja, Samba em prelúdio.

Birt

12. okt. 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vetrarbraut

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014

Þættir

,