Vetrarbraut

Þáttur 11 af 52

Þátturinn var fyrst á dagskrá 14. desember 2013.

Umsjón: Gerður Kristný Guðjónsdóttir

Gerður Kristný leikur tónlist eigin vali. Norræn lög.

Kæru hlustendur! Við dveljum á norðlægum slóðum í þessum þætti og hlustum á tónlist frá Danmörku og Svíþjóð.

1. Sofia Jannok Irene 3.26

Þetta var sænski Saminn og hreindýrabóndinn Sofia Jannok sem flutti lagið Irene. Sofia er feikiskemmtileg tónlistarkona sem jojkar af mikilli list. Það er því við hæfði hlusta á annað lag með henni.

2. Sofia Jannok Vássán áiggit 3.52

Sofia Jannok lauk hér flutningi lagins Liðnar aldir. Frá Stokkhólmi kemur nafna hennar, vísnasöngkonan Sofia Karlsson. Hún lék ásamt hljómsveit á ljóðahátíð sem ég sótti sumarið 2005 í Nässjö í Svíþjóð. Sofia hafði þá nýlega gefið út fyrsta diskinn sinn, Svarta ballader. Þar er finna lagið „Jag väntar ...“

3. Sofia Karlsson - Jag väntar 4.07

Sofia Karlsson flutti lagið „Jag väntar ... eftir trúbadorinn Gunnar Turesson við ljóð skáldsins Dan Andersson. Sjálf er Sofia býsna góður lagasmiður og textarnir vefjast heldur ekki fyrir henni. Árið 2009 gaf hún út geisladiskinn Söder om kärleken. Þar semur hún langflest laganna sjálf og textana sömuleiðis, þeirra á meðal er „Dina Händer (Göteborg)“.

4. Sofia Karlsson Dina Händer (Göteborg) 4.26

Sofia Karlsson var ekki eina sem bauð upp á tónlistaratriði á ljóðahátíðinni í Nässjö sem ég minntist á hér á undan því þar birtist líka Gunnar Edander, höfundur flestra söngvanna á rauðsokkuplötunni „Áfram stelpur!“ Á meðal laganna sem hann söng og lék á hljómborð á ljóðahátíðinni var „Ska bli sjuksystar jag, tralala“. Hér er það hins vegar í flutningi Lottie Ejebrant:

5. Sånger om kvinnor - Ska bli sjuksystar jag, tralala 3.27

Þetta var lagið „Ska bli sjuksystar jag, tralala“ sem Gunnar Edander samdi við ljóð Sonju Åkesson, skálds og femínista. Tralala-ið, sem setur svo skemmtilegan svip á lagið, stóð þegar í ljóðinu, enda alveg í anda stúlkunnar sem þar talar tralla svolítið á meðan hún lætur sig dreyma um framtíðina.

6. ABBA Slipping through My Fingers 3.54

Í næsta lagi koma draumar líka við sögu. Það er Abba-lagið „Slipping through My Fingers“ en það er eitt þeirra laga sem sagt er sérstaklega frá á Abba-safninu í Stokkhólmi. Björn Ulveus samdi „Slipping through My Fingers“ um dóttur hans og Agnethu Fältskog, Lindu sem þá var sjö ára gömul. Björn hafði horft á eftir Lindu á leið út úr dyrunum með skólatöskuna á bakinu og fannst barnið hafa stækkað heldur hratt. Tilfinning sem margir foreldrar kannast við.

7. ABBA Our Last Summer 4.30

Það verður enginn svikinn af heimsækja Abba-safnið í Stokkhólmið. Þar er meðal annars hægt heyra fjórmenningana segja frá hljómsveitalífinu og skoða alla skemmtilegu búningana sem þeir klæddust á sviði. Farið er í gegnum sögu Abba og reynt skyggnast á bak við ástæðu þess hljómsveitin lognaðist út af. Sjálf hafa þau látið hafa eftir sér eins eðlilega og þau hafi byrjað spila saman hafi þau einn daginn einfaldlega hætt því. Þessi orð standa á safninu yfir flennistórri mynd af niðurdregnum Abba-liðum. Hjónaböndin voru farin út um þúfur og hljómsveitin leysast upp. Tónninn hefur verið gefinn. Á næstu veggmynd er dramatískt sólarlag og leið safngesta liggur yfir brú, rétt eins og þeir stigi út úr landi gleðinnar yfir í land sorgar og tóms. Jafnvel harðgerðasta fólk, sem aldrei hefur velt örlögum Abba mikið fyrir sér, verður skyndilega hálfmeyrt.

8. Nikolaj Lie Kaas - Jeg sætter min hat som jeg vil 3.00Árið 2006 fagnaði danska kvikmyndafyrirtækið Nordisk film aldarafmæli sínu og fékk af því tilefni nokkra af fremstu leikurum Dana til syngja lög úr þekktum dönskum kvikmyndum inn á geisladisk. Nikolaj Lie Kaas var einn þeirra. Hann lék meðal annars lögreglumanninn Carl Mørck í kvikmyndinni Konan í búrinu og fór með hlutverk Mathiasar Borch, samstarfsfélaga Söru Lund, í Glæpnum. Hér syngur hann „Jeg sætter min hat som jeg vil“ úr myndinni Jeg er sgu min egen frá árinu 1967.

9. Kim Bodnia Oh, Babe kom med et bud. 2.50

Geisladiskurinn með dönsku kvikmyndalögunum varð svo vinsæll ákveðið var taka upp annan. Leitað var til enn fleiri leikara og þeir beðnir um syngja bæði lög úr norrænum kvikmyndum og revíum. Þar sýnir Kim Bodnia á sér nýja hlið. Sum okkar muna eftir Kim úr kvikmyndinni Pusher en enn fleiri úr Brúnni þar sem hann lék ólánsama lögreglumanninn Martin Rohde. Hér syngur Kim Bodnia „Oh, Babe kom med et bud“.

10. Iben Hjejle - Den första gang jag sag deg 3. 52

Iben Hjejle leikur Dicte í samnefndum sjónvarpsþáttum en hún var líka eftirminnileg í Klovn. Iben er margt til lista lagt og hér syngur hún „Den första gång jag såg dig“ úr sænsku kvikmyndinni Fridas Visor frá 1930.

11. Sidse Babett Knudsen - Pige træd varsomt 3.00

Síðasta lagið sem hér verður leikið af afmælisdiskum Nordisk film heitir Pige træd varsomt og er úr sumarrevíu sem hét Alle ni. Það er engin önnur en Sidse Babett Knudsen sem syngur lagið en hún lék forsætisráðherrann Birgitte Nyborg í Höllinni.

12. Tina Dickow In the red 6.02

Tina Dickow heitir afbragðs tónlistarkona frá Danmörku. Árið 2005 gaf hún út diskinn In the Red. Titillagið er undurfagurt. Ég kveð ykkur með þeim fögru tónum og þakka ykkur fyrir hlusta.

Birt

14. des. 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vetrarbraut

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014

Þættir

,