Vetrarbraut

Þáttur 10 af 52

Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. desember 2013.

Umsjón: Gerður Kristný Guðjónsdóttir

Kæru hlustendur! „Hljóðlega gengur hauströkkrið í hús mitt“, segir í ljóðinu „Hljóðlega“ eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur. Í þessum tónlistarþætti er þetta léttfætta haust boðið velkomið og það sem meira er þá verður gestinum sem fylgir í kjölfarið fagnað líka, sjálfum vetrinum. Hér verða leikin lög um kulda, snjó og skautaferðir. Flytjendurnir koma frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Englandi, Kanada, Bandaríkjunum, Rússlandi og Frakklandi en við byrjum hér heima:

1. Sigur Ros - Vetur 1.44 (Brakar í snjónum þyngsli) Platan Hlemmur.

Það heyrðist braka í snjónum í þessu lagi Sigur rosar „Vetur“. Lagið er úr heimildamynd Ólafs Sveinssonar Hlemmur. Þeir sem hafa beðið þar eftir strætó vita tíminn á einmitt til líða löturhægt á þessari margfrægu stoppustöð. Í lagi Kurt Weill „September Song“ er einmitt sungið um bið.

2. Ella Fitzgerald - September Song 4.41

Finnski listamaðurinn og rithöfundurinn Tove Jansson samdi textann við Haustvísu sem hér er sungið af Önnu Pálínu Árnadóttur. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson þýddi texta Tove.

3. Anna Pálína Árnadóttir - Haustvísa 2.58

Fiona Apple virðist ekki ókunn vetrarkvíðanum. Í laginu „Pale September“ syngur hún um hauströkkrið yfir sér.

4. Fiona Apple - Pale September 5.50

Grámi septembermánaðar var umfjöllunarefni Fionu Apple í laginu „Pale September“ sem hér var leikið. Frakkinn Camille sækir í sama yrkisefni í „Pâle septembre“.

5. Camille - Pâle septembre 3.35

Þegar tekur kólna er gott muna eftir vettlingunum sínum. Tori Amos flaskar á því í vetrarlaginu, „Winter“.

.

6. Tori Amos - Winter 4.40

Systurnar Jóhanna og Klara Söderberg skipa dúettinn First Aid Kit og hlutu Norrænu tónlistarverðlaunin fyrir diskinn Lion’s Roar. Systurnar koma frá Stokkhólmi og þar er veturinn býsna kaldur eins og þær syngja um í laginu „Emmylou“.

7. First Aid Kit - Emmylou 4.25

Á næturnar byrjar snjóa

og allir mæna út um gluggann

á götuljósin

þau eru allt of falleg

til hægt

koma auga á þau

segir í laginu Open eftir Reginu Spektor. Hlustið og njótið!

8. Regina Spektor - Open 4.27

Eitt það besta við veturinn eru jólin. Það er kominn tími til minnast á þau. Sarah McLachlan tekur það sér í laginu „Wintersong“:

9. Sarah McLachlan - Wintersong 3.23 (Minnst á jól)

væri gott vera við ísilagða á svo hægt væri bregða sér á skauta, segir Joni Mitchell í einu af sínum bestu lögum, „River“.

10. Joni Mitchell - River 3.27

Joni Mitchell lét sig dreyma um reima á sig skautana í laginu „River“ og skautaferð er einmitt yrkisefni Kate Bush í laginu „Under Ice“. Hvítt vetrarlandslagið blasir við og ísinn á ánni er heldur. Hún spyrnir sér eftir ísnum en eitthvað virðist á sveimi í köldu vatninu.

11. Kate Bush - Under Ice 2.15

Þar höfum við það. Við höfum hlustað saman á brakið í snjónum, fagnað jólum og rennt okkur saman á skautum. Veturinn er þó ekki á undanhaldi og það getur kyngt niður snjó fram í apríl. Ég þakka ykkur samfylgdina og lýk þessum þætti með því leika Prince-lagið „Sometimes It Snows in April“. Hér er það hins vegar Sanne Salomonsen sem flytur lagið.

Birt

7. des. 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vetrarbraut

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014

Þættir

,