Tónleikur

Sönglög

Það er með ólíkindum hvað sönglagið skipar stóran sess í íslenskri tónlist, sérstaklega þegar litið er til þess að íslenska sönglagið í þeirri mynd sem það er helst þekkt í nú – það er ein rödd og meðleikur oftast píanó - er ekki svo ýkja gamalt, varla orðið hundrað ára. En sönglagið sem slíkt er hins vegar aldurslaust – trúbardúrar miðalda voru ekki einu sinni frumlegir því fólk hefur alltaf sungið og annað hvort það sjálft eða aðrir tónlistarmenn leikið með á einhver hljóðfæri. Í þættinum verða leikin lög sem um 340 ár skilja að, en eru þó ekki svo ólík þegar betur er að gáð.

Leikin verður tónlist úr Melodiu-handritinu, úr Þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinssonar, og einsöngslög samin á 20. öld og við upphaf þeirrar 21, eftir Jórunni Viðar, Gunnar Reyni Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Hildigunni Rúnarsdóttur og Tryggva M. Baldvinsson.

Söngvarar eru Kirstín Erna Blöndal, Guðmundur Vignir Karlsson, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðsson, Jón Þorsteinsson, Loftur Erlingsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Auður Gunnarsdóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Þættir

,