Tónleikur

Arvo Pärt

Fyrsta tónskáld vetrarins er Arvo Pärt enda ekki vanþörf á að tæma hugann og hefja veturinn með ró í sinni. Að því tilefni verður verk hans Tabula rasa burðarás þáttarins, en auk þess verða flutt verkin Magnificat fyrir blandaðan kór, Arbos fyrir málmblásarasveit og Orient Occident, fyrir strengjasveit, öll eftir Arvo Pärt.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Þættir

,