Tónleikur

Klarinett í aðalhlutverki

Í Tónleik í dag verða leikin tvö verk þar sem klarinettan er í aðalhlutverkinu, og í báðum verkunum er það Einar Jóhannesson sem leikur á hljóðfærið. Fyrra verkið er klarinettukonsert í A-dúr K. 622, eftir Wolfgang Amadeus Mozart, sem var jafnframt síðasta verkið sem hann samdi fyrir hljóðfæri eingöngu, Þetta verk hljóðrituðu Sinfóníuhljómsveit Íslands og Einar Jóhannesson undir stjórn Jean-Pierres Jaquillats árið 1986 og útkoman er sérlega

áhrifamikil.

Á eftir klarinettukonsert Mozarts leika Einar Jóhannesson og Martin Berkofsky, Fantasiestücke op. 73 eftir Robert Schumann.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Þættir

,