Tónleikur

Kristinn Árnason

Rétt fyrir jólin kom út plata með gítarleik Kristins Árnasonar þar sem hann leikur verk eftir tvö spænsk og tvö ítölsk tónskáld frá fyrri hluta 19. aldar. Platan dregur nafn sitt af tónskáldunum sem eru: Ferndando Sor, Dionisio Aguado, Mauro Giuliani og Matteo Carcassi. Allir eru þeir fæddir seint á 18. öldinni, en störfuðu að mestu á þeirri nítjándu, í öðrum löndum en fæðingarlöndum sínum. Í þættinum verða leikin nokkur verk af þessari plötu, en líka af einni af eldri plötum Kristins, þar sem meðal annars er að finna verk eftir paragvæíska tónskáldið Augústin Barrios Mangoré.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Þættir

,