ok

Sveiflan sem sigraði heiminn (2014)

Stjörnusöngvarinn Ella Fitzgerald

6. Þáttur.

Ella Fitzgerald varð alltaf mikilvægari og mikilvægari fyrir stórsveit Chick Webbs og er hann lést árið 1939 tók hún við stjórn hljómsveitarinnar þar til hún leystist upp 1941. Tisket a tasket varð fyrsti smellurinn, en fleiri fylgdu í kjölfarið.

Frumflutt

10. júlí 2014

Aðgengilegt til

30. maí 2025
Sveiflan sem sigraði heiminn (2014)

Sveiflan sem sigraði heiminn (2014)

Mörg af helstu snilldarverkum stórsveita svingtímans hafa lengi verið ófáanleg , nema í misjöfnum diskaútgáfum ýmissa fyrirtækja, sem hafa nýtt sér að útgáfuréttur rennur út fimmtíu árum eftir hljóðritun, og hafa þá aðeins haft aðgang að útgefnu efni á lakk- og vínýlplötum.

Þetta er önnur þáttaröðin þar sem sótt er í gullkistu Mosaic og hér verður áfram fjallað um stórsveitirnar, einleikarana og söngvarana, sem heilluðu heimsbyggðina á gullaldarárum svingsins og seldu hljómplötur í hundruðum milljóna eintaka.

Umsjón: Vernharður Linnet

,