Dauðarokk + jazz = Dauðajazz
Þorkell Ragnar Grétarsson ætlaði að verða dauðarokkari en fékk ekki að hætta í gítarnáminu og þurfti fyrir vikið meðal annars að spila með stórsveit austur á Hornafirði. Á endanum…
Sellóleikarinn og tónsmiðurinn Þórdís Gerður Jónsdóttir hefur komið víða við í í tónlist og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum á síðustu árum, leikið nútímaklassík, miðaldatónlist, jazz, popp, raftónlistarkryddaðan spuna og svo má lengi telja. Hún hefur líka gefið sér tíma til að sinna eigin tónlist og sendi á dögunum frá sína aðra sólóskífu þar sem hún túlkar ljóð með sellóinu.
Lagalisti:
Blóðhófnir - No. 9 Mamma birtist í draumum
Projeto Brasil! - Retrato em branco e preto
Vistir - Bíða, vona, bölva
Meraki tríó - Tíminn og vatnið - 10. erindi
Hljóð í ljóði - Malbik
Hljóð í ljóði - Have you seen the bright lily grow

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson