• 00:06:23Andrea Róberts - föstudagsgestur
  • 00:25:24Andrea Róberts - seinni hluti
  • 00:42:08Matarspjallið - húsmæðraleikfimi, sítrónur o.fl.

Mannlegi þátturinn

Andrea Róbertsdóttir föstudagsgestur, og leikfimi, sítrónur og fótalykt í matarspjallinu

Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu var föstudagsgesturinn okkar þessu sinni. Hún var tilnefnd til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísis 2026 en þau verðlaun eru veitt stjórnendum sem hafa skarað framúr á sínu sviði og sýnt framúrskarandi hæfni í starfi. Andrea hefur komið víða við í atvinnulífinu og hefur mjög gaman af lífinu. Hún er þekkt fyrir lífsgleði og jákvæðni og við töluðum við hana um lífið og tilveruna og ferðuðumst aftur í tímann og svo aftur til dagsins í dag.

Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og áætlunin var tala um sumarsólstöður sem eru á sunnudaginn og mat sem er við hæfi borða þá og í dag á kvenréttindadaginn. Aftur á móti festumst við í spjalli upp úr Eldhúsbókinni gömlu, yfir greinum um líkamsrækt húsmæðra, sítrónur og táfýlu.

Tónlist í þættinum í dag:

ég / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)

Hakk og spaghettí / Árný Margrét (Svavar Pétur Eysteinsson)

Fyrrverandi / Una Torfa (Una Torfadóttir)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

19. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,