Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, en hún er ein af þremur ritstjórum Heimildarinnar. Bókin Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg sem hún skrifaði um ævi Guðrúnar Jónsdóttur er nýkomin út. Við fengum að heyra aðeins um þá bók og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ingibjörg Dögg sagði frá eftirtöldum bókum: