Kvöldfréttir

Kjaraviðræður, lífeyrisdómur, vatnslögn til Eyja, íbúafundur í Ölfusi, öryggi vegfarenda og mannréttindi

Reiknað er með Læknafélag Íslands skrifi upp á kjarasamning við ríkið í húsi Ríkissáttasemjara í kvöld. Hægt þokast í deilu kennara, ríkis og sveitarfélaga.

Hæstiréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi Lífeyrissjóð verslunarmanna brjóta á yngri sjóðfélögum með breyttum útreikningi á lífeyrisréttindum. Breytingin tekur mið af því unga fólkið nær líklegra hærri aldri en þau sem eldri eru.

Búist er við hitafundi í Þorlákshöfn í kvöld, þar sem Heidelberg Materials hefur boðað til íbúafundar um fyrirhugaða og umdeilda grjótmölunarverksmiðju.

Bæjaryfirvöld í Vestmanneyjum hafa ákveðið kaup á nýrri vatnslögn, sem lögð verður við hlið þeirrar sem skemmdist, og gegna á hlutverki almannavarna.

Sex sinnum hefur verið ekið á gangandi vegfarendur í nóvember, þar af tvisvar með mjög alvarlegum afleiðingum. Lögregla segir mikilvægt vegfarendur séu vel merktir en ábyrgðin liggi ekki síst hjá ökumönnum.

Nokkur stærstu mannúðar-og mannréttindasamtök landsins segja dæmi um stjórnmálaflokkar tali gegn mannréttindum hér á landi í kosningabaráttunni.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Ásrún Brynja Ingvarsdóttir

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Frumflutt

27. nóv. 2024

Aðgengilegt til

27. nóv. 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,