Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Flugvirkjar skynja sáttarvilja hjá Icelandair, forstjóri flugfélagsins segir verkfall ekki skynsamlegt miðað við efnahagsástand

Formaður flugvirkjafélags Íslands telur meiri sáttarvilja hjá segir flugvirkja upplifa meiri vilja frá Icelandair en áður. Forstjóri Icelandair segir verkfall óskynsamlega leið eins og efnahagsástandið er.

Offita verður meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar, verði aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra samþykkt. 60 prósent fullorðinna og yfir fjórðungur barna er í ofþyngd eða með offituvanda.

Bandaríkjaforseti hefur boðið Vladimír Pútín forseta Rússlands á leiðtogafund G20-ríkjanna í desember – sem Pútín sótti síðast árið 2019.

Sextán missa vinnuna á Siglufirði um áramót, þegar Ísfélagið stöðvar rækjuvinnslu vegna hráefnisskorts. Forsvarsmaður Ísfélagsins vonar að hægt verði að hefja vinnslu aftur í vor.

Ónæði og óþrifnaður fylgir grenndargámum á Akranesi og bæjarstjórinn hefur ákveðið að færa hluta þjónustunnar á móttökustöð fjær byggð.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,