Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Yfirvofandi verkfall flugvirkja, uppsagnir hefjast hjá Heilbrigðisnefnd Suðurlands, ungmenni vilja aðgerðir í samgöngumálum

Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar vill að stjórnvöld grípi inn í deilu flugvirkja og Icelandair ef þess gerist þörf. Milljarðatap verði ef til verkfalls kemur.

Heilbrigðisnefnd Suðurlands hefur hafist handa við uppsagnir starfsfólks þrátt fyrir að ríkið hafi óskað eftir að beðið yrði með það. Breytingar á heilbrigðiseftirliti taka gildi um áramót.

Ungmenni á Vestfjörðum segja lélegar samgöngur milli sveitarfélaga skerða möguleika þeirra til tómstundastarfs. Þau vilja að ríki og sveitarfélög ráðist í úrbætur.

Bandaríkjaforseti segist ekki vita annað en að sonur hans hafi endurgreitt rússneskum kaupsýslumanni fyrir tveggja daga brúðkaupsveislu – sem sögð er hafa kostað um hundrað þúsund dali.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,