Jæja

4. Sjálfbærni: Þegar málið var sett í nefnd

Til þess að leysa umhverfisvandann þarf líka að koma á réttlæti og útrýma fátækt.

Viðmælendur þáttarins eru Hafdís Hanna Ægisdóttir hjá Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Elva Rakel Jónsdóttir hjá Festu.

Umsjón og dagskrárgerð: Guðmundur Steingrímsson. Ritstjórn og samsetning: Jóhannes Ólafsson. Tæknimaður: Markús Hjaltason.

Þáttaröðin er unnin með styrk úr sjóði Háskóla Íslands um samfélagsvirkni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Jæja

Nú þarf að gera eitthvað. Tröllvaxnar áskoranir blasa við þjóðum heims í umhverfismálum. Klukkan tifar. Loftslagsváin herjar á mannkyn og álagið á náttúruna er komið langt yfir þolmörk. Í þessum þáttum er vandinn skoðaður frá mörgum sjónarhornum: Nokkur grundvallarhugtök umhverfismálanna eru tekin fyrir, sögur sagðar af uppruna þeirra, kafað í gögn og talað við fólk sem lifir og hrærist í umhverfismálum í alls konar geirum samfélagsins. Og síðast en ekki síst: Rýnt í lausnirnar.

Umsjón: Guðmundur Steingrímsson.

Þættir

,