Hljóðvegur 1

Hólmfríður í Stykkishólmi, Druslugangan gengin í fjórtánda sinn og Heimsleikarnir í Crossfit

Hólmfríður var á flakki um Stykkishólm í morgun.

Á Æðasetrinu hitti hún Oddrúnu Ástu Sverrisdóttur sem sagði henni frá æðarræktinni og dúntekjunni á Breiðafirði.

Bjarni Jóhann Ingvarsson sundlaugavörður tók á móti henni í Íþróttamiðstöð Stykkishólms og sagði henni frá lífinu í Hólminum og hvernig sumarið væri búið vera.

Svo kom hún við í Skúrnum sem selur sína síðustu hamborgara en ef ekki tekst finna nýja eigendur á næstu dögum verður veitingastaðnum lokað í sumar. Hún ræddi við Arnþór Pálsson, einn af eigendum Skúrsins, um tímamótin.

Druslugangan verður gengin í fjórtánda sinn á laugardag klukkan tvö frá Hallgrímskirkju. Í göngunni getur fólk komið saman og skilað skömminni, fengið útrás og fundið fyrir stuðningi í hópi fólks sem trúir því. Yfirskrift göngunnar í ár er “af hverju erum við ENN ganga?”. Þær Silja Höllu-Egilsdóttir og Lísa Margrét Gunnarsdóttir voru hjá okkur.

Heimsleikarnir í CrossFit fara fram um þessar mundir í San Jose í Kaliforníu. Það eru 6 Íslendingar sem taka þátt í ár. Alma Hrönn Káradóttir, stöðvarstjóri CrossFit Reykjavík er Í San Jose og gaf okkur andrúmsloftið beint í æð.

Á föstudögum á Hljóðvegi 1 þá botnum við vikuna. Steinunn Jónsdóttir tónlistarkona bjó til fyrripart sem tengist málefnum vikunnar en hlustendur botnuðu.

Birt

24. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,