Skyggnst bakvið tjöld Keflavíkurflugvallar, rýnt í HM og póstkort utan af landi
Steiney kíkti í heimsókn á Keflavíkurflugvöll þar sem hún fékk að skyggnast á bakvið tjöldin. Hún ræddi við góða viðmælendur í öryggisleitinni, töskuflokkuninni og flugumferðarstjórnarturninum.
Norðmenn eru komnir áfram í átta liða úrslit á HM eftir að hafa slegið Brassana úr leik í gærkvöldi. Það hefur verið alveg hreint ótrúlegt að fylgjast með árangri smærri þjóða á þessu móti og sömuleiðis hvernig hver stjórþjóðin á fætur annarri hefur dottið úr leik. En hvað drífur þessar litlu þjóðir áfram og hvers vegna komust Þjóðverjar ekki lengra? Við ræddum við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, um heimsmeistaramótið.
Við hringdum til Noregs og fengum að heyra af því hvernig stemningin var í gærkvöldi. Þórhildur Vala Þorgilsdóttir, sem er búsett í Ósló, var á línunni.
Stórmerkir krossar, gamlar veggjaristur, myndir, syllur og innhöggvin sæti eru meðal þess sem finna má í fornum manngerðum hellum sem fundust við Ægissíðu í Rangárþingi ytra. Ekki er vitað fyrir víst hve gamlir þessir hellar eru en talið er að paparnir hafi hoggið þá út. Hólmfríður kom við á ferð sinni um Suðurlandið og hitti Ólöfu Þórhallsdóttur framkvæmdastjóra Hellanna við Hellu, en fyrirtækið býður upp á leiðsögn um þetta stórmerkilega svæði.
Dyrfjallahlaupið fór fram venju samkvæmt um liðna helgi og það var mikið um dýrðir á Borgarfirði eystri í tilefni af hlaupinu. Við vorum fyrir austan um helgina og fengum smá póstkort af stemmningunni í hlaupinu í þættinum í dag.
Birt
6. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.