Ming Ting Mancel var í dag dæmd í tólf ára fangelsi fyrir að bana dóttur sinni Catherine Mancel á Edition-hótelinu í Reykjavík á síðasta ári í samverknaði við eiginmann sinn. Iðunn Andrésdóttir, fréttakona sem hefur fylgst með málinu, kom til okkar.
Ef þið eruð að ferðast með handfarangur takið þá með ykkur málband. Þetta er ráð frá Aðalsteini Svan Hjelm sem lenti í því að þurfa að greiða sextán þúsund krónur aukalega fyrir handfarangurstöskur sem voru alls ekki of stórar þegar hann flaug með easyJet. Eftir mikla erfiðisvinnu hefur flugfélagið loks viðurkennt mistök og mun endurgreiða peninginn, en Aðalsteinn vill þó vara aðra við sem gætu lent í sömu aðstæðum og hann. Hann var á línunni.
Leikhópurinn Fuglabjarg er hluti af skapandi sumarstörfum Garðabæjar. Þær Katrín, Guðrún og Tinna skipa hópinn og hafa búið til í sumar söngleikjashow-tónleikana Óður til söngleiksins. Öllu verður til tjaldað með lifandi hljómsveit, dönsurum, leikmynd og búningum. Þær stöllur kíktu til okkar.
Dagskráin fyrir Innipúkann, líklega einu hátíðarinnar um verslunarmannahelgina sem lofar engri rigningu, liggur nú fyrir. Hátíðin er haldin í Austurbæjarbíói og hefst á fimmtudaginn. Eldar Ástþórsson, einn af skipuleggjendum Innipúkans, sagði okkur frá hátíðinni.
Það er komið að vikulega liðnum hér á Hljóðvegi 1 sem kallast Bæjarstjóraröltið en í dag verður það Borgarstjórarölt. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur ætlar að sýna okkur sinn uppáhaldsstað í Reykjavík sem kannski ekki allir vita af.
Það er nóg um að vera á Listasafninu á Akureyri en þar eru hvorki meira né minna en 9 sýningar í gangi. Hljóðvegur 1 kíkti í heimsókn og Sigríður Örvarsdóttir safnstjóri sýndi okkur hluta af sýningunum. Þar má meðal annars finna samstarfsverkefni með heimsfræga hljóðinnsetningarlistamanninum Zimoun frá Sviss og Sýningu um heilagan fugl eftir Örlyg Kristfinnsson.