Hólmfríður í Stykkishólmi, Druslugangan gengin í fjórtánda sinn og Heimsleikarnir í Crossfit
Hólmfríður var á flakki um Stykkishólm í morgun.
Á Æðasetrinu hitti hún Oddrúnu Ástu Sverrisdóttur sem sagði henni frá æðarræktinni og dúntekjunni á Breiðafirði.
Bjarni Jóhann Ingvarsson sundlaugavörður tók á móti henni í Íþróttamiðstöð Stykkishólms og sagði henni frá lífinu í Hólminum og hvernig sumarið væri búið að vera.
Svo kom hún við í Skúrnum sem selur nú sína síðustu hamborgara en ef ekki tekst að finna nýja eigendur á næstu dögum verður veitingastaðnum lokað í sumar. Hún ræddi við Arnþór Pálsson, einn af eigendum Skúrsins, um tímamótin.
Druslugangan verður gengin í fjórtánda sinn á laugardag klukkan tvö frá Hallgrímskirkju. Í göngunni getur fólk komið saman og skilað skömminni, fengið útrás og fundið fyrir stuðningi í hópi fólks sem trúir því. Yfirskrift göngunnar í ár er “af hverju erum við ENN að ganga?”. Þær Silja Höllu-Egilsdóttir og Lísa Margrét Gunnarsdóttir voru hjá okkur.
Heimsleikarnir í CrossFit fara fram um þessar mundir í San Jose í Kaliforníu. Það eru 6 Íslendingar sem taka þátt í ár. Alma Hrönn Káradóttir, stöðvarstjóri CrossFit Reykjavík er Í San Jose og gaf okkur andrúmsloftið beint í æð.
Á föstudögum á Hljóðvegi 1 þá botnum við vikuna. Steinunn Jónsdóttir tónlistarkona bjó til fyrripart sem tengist málefnum vikunnar en hlustendur botnuðu.
Birt
24. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.