Hljóðvegur 1

Viktor skoraði fjögur á Skaganum, Vopnaskak, Bergið Headspace og Steiney á Akureyri.

Hvernig var helgin? er einn af föstum liðum okkar hér á Hljóðvegi 1 og þar spyrjum við fólk víða um land hvernig helgin hafi verið. Og á eftir ætlum við slá á þráðinn til Viktors Jónssonar knattspyrnumanns hjá ÍA uppi á Skaga en þar voru írskir dagar um helgina og svo gerði hann sér litið fyrir og skoraði fjögur mörk með sínu liði.

Vopnfirðingar halda sína árlegu bæjarhátíð, Vopnaskak, hátíðlega núna 8-14. júlí og eins og oft þá er þar boðið upp á fjölbreytta og fjölskylduvæna dagskrá þar sem lögð er áhersla á allir geti skemmt sér vel. Valdimar Hermannsson er sveitarstjóri á Vopnafirði og sagði okkur frá lífinu þar og hátíðinni Vopnaskaki.

Steiney Skúladóttir liðsmaður Hljóðvegar 1 var stödd á Akureyri og tók hún púlsinn á Norðlendingum, heimsótti m.a. Lystigarðinn í blíðunni. Þar auki spjallaði hún við Sigríði Örvarsdóttur safnstjóra menningarmiðstöðvar Þingeyinga og verðandi safnstjóra Listasafnsins á Akureyri.

Bergið Headspace sem er þverfaglegt móttöku- og stuðningsúrræði fyrir ungt fólk í vanda, á aldrinum 12-25 ára. Þar geta ungmenni leitað sér aðstoðar og enginn vandi er of lítill. Sigurþóra Bergsdóttir sagði okkur frá starfseminni.

Tónlist frá útsendingarlogg 2024-07-17

NÝDÖNSK - Frelsið.

Carpenter, Sabrina - Please Please Please.

NEW ORDER - True Faith.

Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Sjalið.

PÁLMI GUNNARSSON - Þorparinn.

Helgi Björnsson - Einn af okkar allra bestu mönnum (korter í vegan).

BUBBI & KATRÍN HALLDÓRA - Án Þín.

Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit).

FLEETWOOD MAC - Dreams.

Eilish, Billie - Birds of a Feather.

Kasabian - Coming Back To Me Good.

Frumflutt

8. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hljóðvegur 1

Hljóðvegur 1

Hljóðvegur 1 er á síðdegisvaktinni í sumar.

Umsjón: Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson, Kristján Freyr Halldórsson og Valdís Eiríksdóttir.

Þættir

,