Hádegisfréttir 11. október 2026
Zelenský segir Úkraínumenn reiðubúna að hætta árásum á olíuinnviði í Rússlandi um leið og Rússar hætti árásum á orkuinnviði Úkraínu. Trump gagnrýndi árásir Úkraínu í gær og sagði landið…
Samningar hafa náðst milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um öryggismál á Grænlandi. Forsætisráðherra Danmerkur segir fullveldi Danmerkur og sjálfsákvörðunarréttur Grænlands tryggður.
Utanríkisráðherra vonar að samningurinn sé merki um aukið samstarf og öryggi á Norðurslóðum.
Það væri einsdæmi ef íbúar í vestmannaeyjum þurfa að greiða fyrir almannavarnir, segir formaður bæjarráðs um varavatnslögnina sem var lögð í sumar. Lögnin heldur vatni, miðað við fyrstu prófanir.
Bankaskattur er barn síns tíma, og skrítið er að hækka hann, að mati Gylfa Magnússonar. Veik rök séu að skattleggja bankana því þeir hagnist mikið.
Og læknanemar veita veikum böngsum viðeigandi aðhlynningu í dag á árlega Bangsaspítalanum.

Útvarpsfréttir.