
Guðsþjónusta
í Fríkirkjunni í Hafnarfirði
Prestar: Einar Eyjólfsson, Inga Harðardóttir og Margrét Lilja Vilmundardóttir
Predikari/Ræðumaður: Margrét Lilja Vilmundardóttir
Tónlistarstjóri: Örn Arnarson
Kór/Sönghópur: Fríkirkjukórinn í Hafnarfirði
Stjórnandi: Örn Arnarson
Hljómsveit: Guðmundur Pálsson, bassi, Skarphéðinn Þór Hjartarson, píanó, Vigdís Jónsdóttir, harmonika, Örn Arnarson, Gítar. Einsöngur: Kirstín Erna Blöndal
Guðsþjónustan verður í í beinni útsendingu í útvarpi allra landsmanna á Rás 1. Tilefnið er að 100 ár eru liðin frá fyrstu útvarpsútsendingu á Íslandi sem var frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Það var sunnudaginn 31. janúar árið 1926 að útvarpað var sjómannamessu frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Þetta var fyrir daga ríkisútvarpsins en Ottó B. Arnar símfræðingur hafði fengið leyfi til að stofna og starfrækja útvarpsfélag.
Biskup Íslands hafði óskað eftir því að sjómannamessur yrðu haldnar þennan dag í kirkjum landsins. Skipsskaðar voru tíðir á þessum árum og í Halaveðrinu mikla, 8. febrúar árið áður höfðu farist tveir togarar, Leifur heppni og Robertson, sem gerður var út frá Hafnarfirði.
Sjóslys eins og þetta hafði mikil áhrif á lítið bæjarfélag eins og Hafnarfjörð og minningarathafnir höfðu verið haldnar í báðum kirkjum bæjarins þegar togararnir höfðu verið taldir af í febrúar 1925. Messa sem haldin var í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og öðrum kirkjum voru því bæði sjómannamessur og minningarmessur um þá sem höfðu farist í Halaveðrinu mikla.
Ekki er vitað hvers vegna Ottó B. Arnar valdi Fríkirkjuna í Hafnarfirði til að útvarpa frá. Kannski var ástæðan sú að sr. Ólafur Ólafsson var raddsterkur maður sem var ekki verra í svona útsendingu en hann var líka þjóðþekktur klerkur og stjórnmálamaður sem borin var virðing fyrir. Þá er líklegt að það hafi haft sín áhrif að símstöðin í Hafnarfirði var í næsta nágrennni við Fríkirkjuna og stutt að leggja leiðsluna þangað og símsenda svo til Loftskeytastöðvarinnar á Melunum í Reykjavík þaðan sem útsendingin fór í loftið.
Í Öldinni okkar segir um útsendinguna: „Er símþráður lagður í kirkjuna og áhald sett þar er tekur við ræðunni og söngnum og ber til útvarpsstöðvarinnar á Melunum.“ Þá segir líka: „Ræða sr. Ólafs Ólafssonar frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, sú er hann talaði í útvarpið á sunnudaginn mun hafa heyrst víða og langt. T.d. heyrðist hún vel á Gulltoppi vestur á hala. Apríl heyrði og greinilega til ræðumanns, en skipið var 200 sjómílur suðaustur af Vestmannaeyjum.“
Hollvinir um sögu útvarps á Íslandi hafði frumkvæði að því að minnast þessarar fyrstu útvarpsútsendingar með útvarpsguðsþjónustu frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði á 100 ára afmælinu síðasta sunnudag janúar, 25. janúar kl.11.
Fyrir predikun
Vertu, Guð faðir, faðir minn Höfundar – Hallgrímur Pétursson/Thelma Byrd
Friðarljós – Texti: Örn Arnarson / Lag: Kirstín Erna Blöndal
Númer 270 Dýrð þér , Dýrð þér Texti: Kristján Valur Ingólfsson / Lag: Pablo Sosa
Númar 712 – Er vaknar ást á vori lífs – Ljóð Linda S. Prindule- Þýð. Kristján valur Ingólfsson/ Lag: Linda S. Prindule
Númer 673 – Lýs, milda ljós – Ljóð John H. Newmann – Þýð. Matthías Jochumsson / Lag: Charles H. Purday
Forspil: Sigling. Ljóð Örn Arnarson – lag Friðrik Bjarnason
Eftir predikun
Frostrósir – Lag og ljóð: 12. september
Númer 775 – Líknargjafinn þjáðra þjóða – Ljóð: J‘on Magnússon – Lag Charles C. Converse
Númer 242 – Megi gæfan þig geyma – LJóð: Bjarni Stefán Konráðsson / Lag: Nickomo Clarke
Eftirspil: Stolt siglir fleyið mitt – Ljóð og lag: Gylfi Ægisson
Frumflutt
25. jan. 2026Aðgengilegt til
Rennur ekki út