Guðsþjónusta

í Digraneskirkju

Kristniboðsdagurinn.

Prestur: Sr. Hildur Sigurðardóttir

Predikari/Ræðumaður: Sigríður Schram, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga

Helga Vilborg Sigurjónsdóttir og Margrét Helga Kristjánsdóttir leiða söng ásamt félögum úr Karlakór KFUM. (Stjórnandi kórsins er Ásta Haraldsdóttir.)

Einsöngur Margrét Helga Kristjánsdóttir

Píanó: Bjarni Gunnarsson

Kontrabassi: Guðrún Jóna Þráinsdóttir

Lesarar: Helga Vilborg Sigurjónsdóttir og Margrét Helga Kristjánsdóttir

Kristniboðsdagurinn er dagur í kirkjuárinu sem er tileinkaður kristniboði. Dagsins er minnst víða í kirkjum landsins. Þá er kristniboðsstarf kynnt og safnað fé til þess. Guðsþjónustan í dag er í umsjón Kristniboðssambandsins og send út frá Digraneskirkju.

Íslenskt kristniboðsstarf á sér langa sögu. Kristniboðssambandið var stofnað árið 1929 og studdi fyrst kristniboða í Kína. Síðan hefur íslenskt kristniboð beinst að Eþíópíu, Keníu, Japan, Evrópu og þátttöku í sjónvarpsútsendingum til Miðausturlanda og Norður-Afríku.

TÓNLIST Í MESSUNNI :

Fyrir predikun

Forspil: Lygna, höfundur: Bjarni Gunnarsson

Uppskerunnar Herra. Lag: George Bennard/Texti: Georg Bennard- Bjarni Eyjólfsson

Ég leitaði þyrstur. Lag: Agnes Ekber/Texti Bjarni Eyjólfsson

Vitni. Lag: Håvard Måseide/Texti: Håvard Måseide- Guðlaugur Gunnarsson

Já lofa þú Drottinn sála mín.Lag: John Talbot/Texti: Byggður á Sálmi 103:1- 3, 13

Eftirspil: Blessun, höfundur: Bjarni Gunnarsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Guðsþjónusta

Þættir

,