
Guðsþjónusta
í Bústaðakirkju
Guðsþjónusta dagsins er send út frá Bústaðakirkju í Reykjavík og ber hún bleikan blæ í tilefni Bleiks októbers. Séra Laufey Brá Jónsdóttir og séra Sigríður Kristín Helgadóttir þjóna fyrir altari ásamt Hólmfríði Ólafsdóttur djákna og Báru Elíasdóttur kirkjuþjóni. Séra Auður Pálsdóttir, sjúkrahúsprestur, prédikar.
Konur úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista. Gréta Hergils sópran og Laufey Geirlaugsdóttir syngja einsöng.
TÓNLIST Í MESSUNNI
Fyrir predikun
Forspil: Englasöngur-hymni Latn. texti/Jónas Þórir
390 Líður að dögun- Eleanor Farjeon/Sigríður Guðmarsdóttir
474 Lofsyngið Drottni- Valdemar V. Snævarr/George F. Händel
273 Stjörnur og sól-Britt G. Hallquist/Lilja S. Kristjánsdóttir
377 Þung er mín sorg -Hjördís Björg Kristinsdóttir/Jónas Þórir
Eftir predikun
Með eld í sál -Sigurbjörn Þorkelsson/Jóhann Helgason
Þitt fyrsta bros -Ólafur Haukur Símonarson/Gunnar Þórðarson
728 Ljósfaðir -Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson/Sigurður Flosason
Eftirspil: Sumri hallar Þjóðvísa og þjóðlag (spunnið útspil)
- Birt
- Aðgengilegt til
- Rennur ekki út
- Lengd
