
Guðsþjónusta
í Hallgrímskirkju
Ártíð Hallgríms Péturssonar.
Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Hallgrímskirkja var vígð árið 1986 af sr. Pétri Sigurgeirssyni þárverandi biskup Íslands. En kirkjan hafði verið um 35 ár í byggingu eða frá árinu 1945. Hornsteinn kirkjunnar var lagður árið 1974 .
Í tilefni tímamótanna verður frumflut nýtt tónverk eftir Hauk Tómasson, „Psalmus 150“ fyrir kór og orgel. Hallgrímskirkja er helguð minningu Hallgríms Péturssonar og ber hans nafn og í messunni verða sungnir sálmar eftir Hallgrím Pétursson.
Prestar: Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Eiríkur Jóhannsson og Sigurður Árni Þórðarson
Predikari/Ræðumaður: Gísli Gunnarsson vígslubiskup
Organisti: Björn Steinar Sólbergsson
Kórstjóri: Steinar Logi Helgason
Kór/Sönghópur: Kór Hallgrímskirkju
Forsöngvari: Þorbjörn Rúnarsson Trompetleikarar: Einar Jónsson, Eiríkur Örn Pálsson og Zackary Silberschlag Pákuleikari: Frank Aarnink
Tónlistin í messunni:
Fyrir predikun
Innganga: Þá þú gengur í Guðs hús inn Hymnodia Sacra-Þorkell Sigurbjörnsson / Hallgrímur Pétursson
Miskunnarbæn Kyrie eleison Missa de Angelis
474 Lofsyngið Drottni Georg F. Händel / Valdemar V. Snævarr
Kórsöngur Gefðu að móðurmálið mitt ísl. Þjóðlag – Róbert A. Ottósson / Hallgrímur Pétursson
495a Víst ertu, Jesú, kóngur klár Útsetn. Páll Ísólfsson og Hörður Áskelsson / Hallgrímur Pétursson
Eftir predikun
Stólvers Psalmus 150 [frumflutningur] Haukur Tómasson
Kórsöngur Gegnum Jesú helgast hjarta Jakob Tryggvason / Hallgrímur Pétursson
Undir útdeilingu Ave verum corpus Hjálmar H. Ragnarsson / Bænaljóð frá 13. öld
516a Son Guðs ertu með sanni Hamborg 1598 – Gr. 1691 – PG 1861 / Hallgrímur Pétursson
Eftirspil: Te Deum Charles Tournemire
- Birt
- Aðgengilegt til
- Rennur ekki út
- Lengd
