Anna Bergljót Thorarensen og U-beygjur lífsins
Allir landsmenn þekkja Leikhópinn Lottu og fjölmargir leggja leið sína á aðventunni til að njóta Ævintýra í Jólaskógi. Færri vita kannski að konan á bak við þessi leikhúsævintýri er…
Allir landsmenn þekkja Leikhópinn Lottu og fjölmargir leggja leið sína á aðventunni til að njóta Ævintýra í Jólaskógi. Færri vita kannski að konan á bak við þessi leikhúsævintýri er Anna Bergljót Thorarensen leikskáld og leikkona. Hún kemur í Fimmu dagsins og talar um breytingar í lífinu sem við köllum oft U-beygjur.
Svo könnum við í tónlist hvað gerðist á deginum

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.