Ísleifur Þórhallsson og minningar frá Airwaves
Það er hátíðartími hjá tónlistarunnendum því Iceland Airwaves stendur fyrir dyrum. Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live hefur haldið hátíðina með sínu fólki frá 2018 og þekkir söguna…
Skugginn er nafn á nýrri bók rithöfundarins, náttúruverndarsinnans og handhafa Bjartsýnisverðlaunanna Hildar Knútsdóttur en hún var gestur Felix í fimmu dagsins. Fimman var auðvitað tengd bókmenntum og Hildur sagði frá fimm bókum sem höfðu áhrif á líf hennar. Þar kenndi margra grasa og sagan barst frá Þjóð bjarnarins mikla til Hobbitans með viðkomu í Isabel Allende.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.