Fram og til baka

Ísleifur Þórhallsson og minningar frá Airwaves

Það er hátíðartími hjá tónlistarunnendum því Iceland Airwaves stendur fyrir dyrum. Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live hefur haldið hátíðina með sínu fólki frá 2018 og þekkir söguna vel. Hann kom í fimmu um fimm minningar sem tengjast Airwaves og þar kom margt skemmtilegt upp úr hattinum. Hann talaði um hljómsveitir og listamenn sem hafa byrjað á pínulitlum tónleikastöðum á Airwaves en orðið risastór í kjölfarið. Covid kom við sögu og átakið sem farið var í til að ná í unga fólkið. Svo spiluðum við skemmtilega tónlist tengda hátíðinni í ár.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,