Eldhúsverkin með Dodda

Breski fiskvinnslumaðurinn sem varð diskó kóngur í Bandaríkjunum

Maður dagsins í eldhúsinu var Rod Temperton.

Rod Temperton (1949–2016) var breskur lagahöfundur, hljómborðsleikari og upptökustjóri sem samdi nokkra af stærstu diskó-, fönk- og poppsmellum áttunda og níunda áratugarins.

Hann var kallaður The Invisible Man vegna þess að hann forðaðist sviðsljósið þrátt fyrir að hafa samið lög sem hundruð milljóna manna þekkja.

Temperton fæddist í Cleethorpes á Englandi og starfaði meðal annars í fiskvinnslu áður en tónlistarferillinn fór á flug. Hann gekk til liðs við diskósveitina Heatwave á áttunda áratugnum og samdi þar meðal annars „Boogie Nights“ og „Always and Forever“.

Tónlistarframleiðandinn Quincy Jones heyrði hæfileika hans og fékk hann til að semja fyrir Michael Jackson. Temperton samdi þrjú lög á Off the Wall og þrjú á Thriller, þar á meðal titillagið sem varð eitt þekktasta popplag sögunnar.

Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna, ásamt Quincy Jones og Lionel Richie, fyrir lagið „Miss Celie's Blues“ úr kvikmyndinni The Color Purple árið 1986

Lagalisti dagsins:

Boogie Nights – Heatwave 1977

"Rock with You" – Michael Jackson 1979–80

"Baby, Come to Me" – Patti Austin & James Ingram 1982–83

"Give Me the Night" – George Benson 1980

Sweet Freedom" – Michael McDonald 1986

Stomp! The Brothers Johnson 1980

Stefanía Svavars - Miss Celie's

"Hey Lover" – LL Cool J (feat. Boyz II Men) 1995–96

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Eldhúsverkin með Dodda

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Þættir

,