Eldhúsverkin með Dodda

Íslensk tónlist á íslensku um íslenska tungu á degi íslenskrar tungu.

Í eldhúsinu í kvöld heyrðum við nokkur lög um okkar ástkæra og ylhýra tungumál á degi íslenskrar tungu. Þónokkur lög hafa verið samin um tungumálið okkar eða svona um íslenskuna yfir höfuð.

Hér eru dæmi:

Á íslensku má alltaf finna svar - Þórarinn Eldjárn - Atli Heimir Sveinsson

Norbusang er norrænt barna- og ungmennakóramót fyrir krakka og ungmenni á aldrinum 9–25 ára

Ljúfur Ljúfur - AAA Orðbragð

Sumarið ´24 - Málæði 2024

Sumarið ‘24 er nýtt lag sem Bubbi sendi unglingum í grunnskólum og bauð þeim að semja texta. Yfir 100 textahugmyndir bárust. Oft voru heilu bekkirnir að vinna textana saman svo gera má ráð fyrir að 1000 unglingar eigi þátt í textum. Bubbi lagði hug og hjarta í að búa til nýjan texta byggðan á hugmyndum unglinganna. Titill lagsins vísar í lagið Sumarið ‘68 sem Bubbi samdi sem unglingur.

Ragnheiður Gröndal Gefðu að móðurmálið mitt Textahöfundur Hallgrímur Pétursson [1614-1674]

Memfismafían, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Óttarr Proppé – „S.T.A.F.R.Ó.F.“ (2014)

Bragi Valdimar

Memfismafían með Sigurði Guðmundssyni og Jóni Gnarr – „Mannanafnanefnd“ (2015)

Bragi Valdimar gerir grín að því að fólk þurfi leyfi til að heita því sem það vill. Jón Gnarr leikur með, sem gefur laginu aukið gildi. Hann hefur sjálfur lýst því hvernig Þjóðskrá hafnaði fyrst nafninu Jón Gnarr áður en það var fært í skrána.

Emmsjé Gauti – „Tölum saman“

Stutt rapp um hvað við eigum mörg orð yfir það að tala. Brag Valdimari fór í samheitaorðabókina, Úlfur Úlfur vann lagið með honum og Gauti flutti það í auglýsingunni.

Twítí - Gott mál

Grýlur - Valur og Jarðaberjamaukið

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Eldhúsverkin með Dodda

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Þættir

,