Eldhúsverkin með Dodda

Kannski hefði ég átt að segja "já takk!"

Síðasti þátturinn í bili í þáttarröðinni um tónlistarfólkið sem afþakkaði stórsmellina og sá eftir því.

Fólk eins og Karen Carpenter, Tina Turner, Michael Jackson og auðvitað Bucks Fizz koma við sögu.

Nicole Scherzinger + Leona Lewis → Rihanna — „We Found Love“

Þetta er risastórt.

Calvin Harris sendi „We Found Love“ fyrst til Leonu Lewis, sem tók meira að segja upp söng á demói. Hún ákvað síðan að gefa út annað lag sem næsta smáskífu.

Nicole Scherzinger fékk svo líka lagið og hafnaði því. Hún sagði sjálf síðar: „I passed on 'We Found Love'“ og viðurkenndi að hún hefði verið of upptekin til að taka það upp.

Michael Jackson → Justin Timberlake — „Rock Your Body“

The Neptunes sömdu/framleiddu lagið með Michael Jackson í huga fyrir Invincible. Jackson og hans teymi létu það hins vegar fara. Justin Timberlake fékk það síðan og setti það á Justified.

Karen Carpenter → Michael Jackson — „Rock with You“

Rod Temperton samdi „Rock with You“ og bauð Karen Carpenter það fyrir sólóplötu hennar. Hún hafnaði því. Michael Jackson tók það svo upp og það varð #1 bæði á Billboard Pop og R&B og eitt stærsta lag hans frá Off the Wall.

Cliff Richard → Phyllis Hyman → Donna Summer → Bucks Fizz → Tina Turner — „What's Love Got to Do with It“

Þetta er mögulega eitt besta dæmið sem við höfum fundið.

Lagið var upphaflega boðið Cliff Richard. Hann hafnaði því.

Svo kom Phyllis Hyman — hún vildi taka það upp, en Clive Davis hjá Arista leyfði henni það ekki.

Þá fór það til Donna Summer, sem hafði lagið hjá sér í mörg ár en tók það aldrei upp.

Síðan komu Bucks Fizz. Þeir tóku meira að segja upp útgáfu — en hún var lögð til hliðar.

Þá kom Tina Turner.

Tina sjálf var ekki einu sinni hrifin af laginu í byrjun. Hún hafði „no desire to sing it“ samkvæmt endurminningum hennar.

. Tina Turner → Olivia Newton-John — „Physical“ (1981)

Lagið var hugsað með Rod Stewart í huga og var síðan boðið Tinu Turner. Hún hafnaði því vegna þess hve kynferðislegt það þótti. Þá fór það til Olivia Newton-John — og hún tók það alla leið í 10 vikur í #1 á Billboard Hot 100.

„Ímyndið ykkur Physical með Rod Stewart. Eða Tinu Turner. Það var plan A og B.“

Billy Idol → Simple Minds — „Don't You (Forget About Me)“ (1985)

Keith Forsey samdi lagið fyrir The Breakfast Club og það var boðið Bryan Ferry og Billy Idol, sem báðir höfnuðu því. Simple Minds höfnuðu því líka í fyrstu vegna þess að þeir vildu helst spila eigin lög. Þeir létu loks undan — og lagið varð #1 í Bandaríkjunum, eina #1-lag sveitarinnar þar.

Og þetta er sérstaklega skemmtilegt í útvarpi:

Billy Idol: NEI.

Bryan Ferry: NEI.

The Fixx: NEI

Simple Minds: „Okkur langar eiginlega ekki.“

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Eldhúsverkin með Dodda

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Þættir

,