
Eldhúsverkin með Dodda
Léttir tónar óma úr eldhúsinu.
Í Eldhúsverkum kvöldsins héldum við svolítið áfram með sögu mánudagsins þar sem Doddi tengdi saman liðsmenn hljómsveitarinnar "Big in Japan" og var kominn til Sviss með dúóinu Yello. Í þætti kvöldsins héldum við áfram að tengja saman lög og listafólk á skemmtilegan máta. Það er engin veikur hlekkur í þessari keðju, Gullkeðju.
Hver er það sem úar svo fallega, Jú sá hét Billy McCenzie og söng með hljómsveitnni Assosiates um Morgunmat til dæmis.
Associates og Breakfast sem var eitt sinn upphafs lag þáttar hér á Rás 2, að vísu ósungið þá.
Sá þáttur hét Nú er lag þar sem spilaður var léttur Jazz og stórsveitar sveiflu tónlist, umsjónarmaður var hinn frábæri Gunnar Salvarsson en hann stjórnaði fleiri þáttum her á Rás 2 á fyrstu árum stöðvarinnar, til dæmis bibbliuþætti ungafólksins á þeim tíma, Listapoppi
Yellow Magic orghestra - Rydeem
Yellow Magic orghestra og lagið Rydeem sem var upphafslag Listapopps sem Gunnar Salvarsson stjórnaði hér á Rás 2 í áttunni
Aðal maðurinn í Yellow Magic orghestra var íslandsvinurinn Ryuichi Sakamoto sem vann mikið með David Sylvian á þessum árum og saman gerður þeir Forbidden colours árið 1983.
Ryuichi Sakamoto og David Sylvian og Forbidden colours úr kvikmyndinni Merry Christmas Mr. Lawrence þar sem Sakamoto samdi tónlistina og lék stórt hlutverk í myndinni ásamt David Bowie, talandi um kvikmyndir.
David Bowie ásamt Giorgio Moroder og lagið Cat People (Putting Out the Fire) úr kvimyndinni Cat People en Moroder sá einmit um tónlistina í myndinni
Donna Summer og Moroder og I feel love, það fer ekki mikið fyrir merkilegum trommuleik í laginu en Keith Forset sá um magnaðan bassatrommuleik í laginu.
Keith þessi er kannski hvað þekktastur fyrir að hafa samið Don´t you forget about me fyrir Simple minds en það er of augljós tenging.
Keith Forset var nefnilega aðal trommuleikarinn í Boney M og her fær hann aðeins Meira að gera en í I feel love, takk fyrir í kvöld, góða helgi.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.