Dostojevskí á meðal vor

4. þáttur: Rannsóknardómarinn mikli

Rannsóknardómarinn mikli er einn af hápunktum Karamazov-bræðranna og samanlagðra heimsbókmenntanna, rósettu-steinn skáldsögu Dostojevskí sem lifað hefur sínu sjálfstæða lífi æ síðan og rótað upp í heimspeki Vesturlanda og kristinni trú. Í þættinum köfum við ofan í Rannsóknardómarann mikla og sögupersónuna sem skóp þessa makalausu frásögn, Ívan Karamazov. Með okkur í för er Laurie Anderson, Tindersticks og Tom Waits, rússneskur kirkjukór sem syngur fjölradda aftansöng og rússnesk-búddíski fjöllistahópurinn Phurpa.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Dostojevskí á meðal vor

Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí er eitt af höfuðverkum heimsbókmenntanna. Gunnar Þorri Pétursson lýkur upp undraheimum þessarar miklu skáldsögu og kryfur til mergjar þær áleitnu spurningar sem Dostojevskí spyr um ástina, mannsálina, Guð, framtíð Rússlands og mannkyns alls. Gunnar Þorri hefur tvívegis hlotið Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingar sínar á rússneskum bókmenntum. Hann gerði þáttaröðina vinsælu Rús fyrir Ríkisútvarpið og hefur um árabil haldið úti þéttsetnum námskeiðum um undraheima rússnesku skáldsögunnar.

Þættir

,