Dostojevskí á meðal vor

2. þáttur: Cor cordium

Í öðrum þætti kynnumst við helstu sögupersónum Karamazov-bræðranna og skáldskaparaðferðum Dostojevskís. Hvernig fann rússneski skáldajöfurinn neistann sem vakti persónur bókarinnar til lífsins og hjartað í frásögninni? Við sögu koma Nina Simone, Míkhaíl Bakhtín, Helgi Hálfdanarsson, Ludvig van Beethoven o.fl.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Dostojevskí á meðal vor

Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí er eitt af höfuðverkum heimsbókmenntanna. Gunnar Þorri Pétursson lýkur upp undraheimum þessarar miklu skáldsögu og kryfur til mergjar þær áleitnu spurningar sem Dostojevskí spyr um ástina, mannsálina, Guð, framtíð Rússlands og mannkyns alls. Gunnar Þorri hefur tvívegis hlotið Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingar sínar á rússneskum bókmenntum. Hann gerði þáttaröðina vinsælu Rús fyrir Ríkisútvarpið og hefur um árabil haldið úti þéttsetnum námskeiðum um undraheima rússnesku skáldsögunnar.

Þættir

,