
Dostojevskí á meðal vor
Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí er eitt af höfuðverkum heimsbókmenntanna. Gunnar Þorri Pétursson lýkur upp undraheimum þessarar miklu skáldsögu og kryfur til mergjar þær áleitnu spurningar sem Dostojevskí spyr um ástina, mannsálina, Guð, framtíð Rússlands og mannkyns alls. Gunnar Þorri hefur tvívegis hlotið Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingar sínar á rússneskum bókmenntum. Hann gerði þáttaröðina vinsælu Rús fyrir Ríkisútvarpið og hefur um árabil haldið úti þéttsetnum námskeiðum um undraheima rússnesku skáldsögunnar.