Dostojevskí á meðal vor

3. þáttur: Skuggahetjur bókmenntanna

Í þætti dagsins verða sögur sagðar af glímu íslenskra þýðenda við Karamazov-bræðurna í gegnum tíðina en sú saga er margslungnari og óvæntari en margan grunar. Tómas R. Einarsson leikur undir á bassa en við sögu kemur einnig túlkun Wendy Carlos á Óðnum til gleðinnar sem notuð var í kvikmyndinni A Clockwork Orange og lag leikið á sög úr smiðju Toms Waits. Sérlegur gestalesari í þættinum er Vera Illugadóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Dostojevskí á meðal vor

Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí er eitt af höfuðverkum heimsbókmenntanna. Gunnar Þorri Pétursson lýkur upp undraheimum þessarar miklu skáldsögu og kryfur til mergjar þær áleitnu spurningar sem Dostojevskí spyr um ástina, mannsálina, Guð, framtíð Rússlands og mannkyns alls. Gunnar Þorri hefur tvívegis hlotið Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingar sínar á rússneskum bókmenntum. Hann gerði þáttaröðina vinsælu Rús fyrir Ríkisútvarpið og hefur um árabil haldið úti þéttsetnum námskeiðum um undraheima rússnesku skáldsögunnar.

Þættir

,