Á tónsviðinu

Therese Jansen Bartolozzi

Í þættinum verða leikin verk sem tileinkuð voru píanóleikaranum Therese Jansen Bartolozzi, en hún fæddist í kringum 1770 og dó 1843. Píanókennari hennar var Muzio Clementi, einn af merkustu píanóleikurum 18. aldar. Therese var eftirlætisnemandi hans og árið 1794 samdi hann þrjár píanósónötur sem hann tileinkaði henni. Sama ár samdi Joseph Haydn tvær píanósónötur sem hann tileinkaði Therese og þremur árum síðar tileinkaði hann henni þrjú píanótríó. Í þættinum verður leikið píanótríó nr.43 í C-dúr eftir Haydn, einnig píanósónata í F-dúr ópus 33 eftir Clementi og 1. kafli úr píanósónötu nr.52 í Es-dúr eftir Haydn. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,