Óresteia
Þetta er síðasti þátturinn af þremur þar sem fjallað hefur verið um Trójustríðið og tónverk og bókmenntir sem því tengjast. Fyrsti þátturinn fjallaði um Trójustríðið sjálft, annar…
Árið 1926 - fyrir hundrað árum - voru í fyrsta sinn haldnir sinfóníutónleikar á Íslandi. Þá kom Fílharmóníusveit Hamborgar í heimsókn til Íslands og hélt nokkra tónleika undir stjórn Jóns Leifs, en einleikari var kona Jóns, Annie Leifs. Þetta var stórmerkur viðburður í íslenskri tónlistarsögu. Í þættinum verða flutt nokkur af þeim tónverkum sem Íslendingar heyrðu þarna í fyrsta skipti og umsagnir um tónleikana verða lesnar úr dagblöðum frá 1926. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.