Á tónsviðinu

Trójustríðið

Margar af goðsögnum Forn-Grikkja snúast um Trójustríðið sem menn töldu að hefði verið háð á 13. eða 12. öld fyrir Krist. Frægar fornbókmenntir tengjast þessu stríði svo sem "Ilionskviða" og "Ódysseifskviða" eftir skáldið Hómer og þríleikurinn „Óresteia“ eftir harmleikjahöfundinn Aiskýlos, en goðsagnirnar hafa einnig haft áhrif á nútímabókmenntir og listaverk. Undanfarið hafa sögur sem tengjast Trójustríðinu verið sérlega mikið í sviðsljósinu. Kvikmyndin „Ódysseifskviða“, sem Christopher Nolan leikstýrði, var frumsýnd á þessu ári og hér á landi hefur sýning Þjóðleikhússins á Óresteiu í leikgerð og leikstjórn Benedicts Andrews vakið mikla athygli. Í tilefni af þessu verða næstu þrír Tónsviðsþættir Unu Margrétar Jónsdóttur helgaðir tónlist sem tengist Trójustríðinu og sögum þeim tengdum. Í þessum þætti (15. október) verður fjallað um Trójustríðið, í þættinum eftir viku, 22. október, verður sjónum beint að Ódysseifskviðu og 29. október verður fjallað um Óresteiu. Af þeirri tónlist sem flutt verður í þættinum um Trójustríðið má nefna atriði úr gamanóperunni „Helenu fögru“ eftir Jacques Offenbach, söngdúettinn „Kveðju Hektors“ eftir Franz Schubert og atriði úr óperunni „Kassöndru“ eftir Bernard Foccrouille, en síðastnefnda óperan var frumflutt í Brüssel árið 2023. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Gunnar Hansson og Halla Harðardóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,